Vikivaki
Настоящее имя: Vikivaki
Об исполнителе:
Þegar hljómsveitarnafnið Vikivaki heyrist kviknar sjálfsagt ekki á perunni hjá mörgum Íslendingum í dag en þessi sveit var íslensk-sænsk og starfaði um árabil í Svíþjóð þar sem hún gerði garðinn frægan, og reyndar víða. Heimildir um sveitina eru litlar og því stiklað á stóru hér en nokkuð vantar inn á milli og verður því að geta í eyður þar sem það á við. Sveitin var í raun stofnuð 1966 í Svíþjóð sem skólahljómsveit en ekki liggur ljóst fyrir hverjir skipuðu sveitina í upphafi og e.t.v. fékk hún ekki nafn sitt fyrr en síðar. Það er þó ekki fyrr en 1973 sem hróður hennar barst til Íslands en þá kom hún fram á Íslandskynningu í Gautaborg og var hennar þá getið í íslenskum fjölmiðlum, þá er henni lýst sem þjóðlagarokksveit. Vikivaki var þá skipuð bræðrunum Jóni sem söng og lék á trommur og Hans sem einnig söng en lék á píanó og gítar. Þeir voru Magnússynir (Gíslasonar) en voru titlaðir Gíslason eins og faðir þeirra vegna ættarnafnshefðar í Svíþjóð. Þeir bræður höfðu verið í henni frá upphafi. Þá voru Svíarnir Tommy Eriksson bassaleikari og Christer Modin gítarleikari einnig í sveitinni 1973. Þetta sama ár, 1973 kom fyrsta smáskífa sveitarinnar út á vegum Plump productions en það var tveggja laga plata. Vikivaki mun hafa notið einhverrar hylli í Svíþjóð en fremur litlar heimildir finnast þó um það. Bass – Kenny Olsson Drums, Vocals – Jon Gislason Guitar [Additional] – Tony Borg, Ulf Wakenius Guitar, Vocals – Gunnar Gislason Keyboards – Tommy Halldén Lead Vocals, Guitar, Keyboards – Hans Gislason Piano – Jan Lukas Persson*
Альтернативные названия:
Участие в группах:
Участники группы:
Вариации названий:
Iceland